Nýjast á Local Suðurnes

Earlham Institute í samstarf við Verne Global

Breska erfðafræðifyrirtækið Earlham Institute (EI) mun nú koma til með að setja upp tölvuþjóna í gagnaveri Verne Global að Ásbrú. Þetta kemur fram á vef Viðskiptablaðsins.

Fyrir stuttu var tilkynnt að að Volkswagen bílaframleiðandinn færi í samstarf við Verne Global auk þess sem annar þýskur bílaframleiðandi, BMW, hefur nýtt sér þjónustu gagnvarersins Verne Global um nokkura ára skeið.

Earlham Institute vill nýta aðstöðuna sem Verne Global býður upp á undir öfluga gagnareikninga til að spara um 70% í rafmagnskostnað segir í tilkynningu frá EI.