Umhverfisvænn göngustígur úr Grindavík að Bláa lóni

Grindavíkurbær hefur undanfarin ár unnið að uppbyggingu göngu- og hjólreiðastíga í landi bæjarins. Árið 2014 var lagður malbikaður stígur frá Lækningalind meðfram hluta Bláalónsvegar og að vatnstanki við Northern Ligt Inn.
Þegar lagningu stíga að landamörkum Grindavíkur við Seltjörn er náð þá verða stígar samtals um 12,2 km að lengd og malbikaður hluti þeirra verður um 9,2 km en áætluð verklok eru sumar 2017.
Malbik sem notað hefur verið í stíga er svokallað „grænt malbik” og er talið mun umhverfisvænna en hefðbundið malbik. Efnið er kallað kaldblandað malbik og er með 100% endurunnu efni, kostnaður vegna þessa er skv. upplýsingum frá framleiðanda um 30-45% ódýrara en hefðbundin malbikun. Þetta kemur fram á vef Grindavíkurbæjar, en þar má fræðast meira um göngustíginn.
Aðalverktaki við lagningu þessara stíga hefur verið verktakafyrirtækið G.G. Sigurðsson ehf í Grindavik og malbikun verið unnin af Hlaðbær-Colas.
Stígagerð þessi hefur verið kostuð og unnin í samstarfi Grindavíkurbæjar, HS-Orku, Bláa Lónsins og Vegagerðarinnar.