Nýjast á Local Suðurnes

Krot í vél Icelandair til rannsóknar hjá lögreglu

Lögreglan á Suðurnesjum var um helgina kölluð út vegna skemmda sem unnar höfðu verið innanborðs á flugvél Icelandair sem var að koma frá Portland.

Búið var að krota, að líkindum með tússpenna, á innréttingar salerna í vélinni. Voru sjáanlegar skemmdir á skápum á þremur salernum sem staðsett eru fyrir miðu vélarinnar. Lögreglan rannsakar málið.