Nýjast á Local Suðurnes

Afbygging stóriðju í Helguvík – Opnunarhóf á laugardag

Opnunarhóf fyrir sýninguna, Afbygging stóriðju í Helguvík með listamannateyminu Libiu Castro & Ólafi Ólafssyni, verður haldið laugardaginn 9. mars kl. 14:00.

Listasafn Reykjanesbæjar býður öll velkomin á sýninguna, Afbygging stóriðju í Helguvík, sem er verk í vinnslu og unnið í samstarfi og samtali Libiu & Ólafs við Töfrateymið, Andstæðinga stóriðju í Helguvík, aðra umhverfisverndarsinna, hagfræðing, íbúa Reykjanesbæjar og nærsamfélaga og sýningarstjórann Jonatan Habib Engqvist.

Við mælum með því að fólk komi oftar en einu sinni yfir sýningartímann og taki þátt í samtalinu, segir í auglýsingu fyrir viðburðinn.

Sýningin er styrkt af Safnasjóði. Listamennirnir eru styrktir af Myndlistarsjóði og Myndstef.

Afbygging stóriðjunnar í Helguvík stendur til sunnudagsins 28. apríl 2024.

Libia Castro & Ólafur Ólafsson hófu samstarf sitt í Hollandi árið 1997. Þau vinna þverfagleg samvinnuverkefni; með vídeó, ljósmyndun, hljóðskúlptúr og margmiðlunar innsetningar. Libia & Ólafur fóru fyrir hönd Íslands á Feneyjartvíæringinn árið 2011. Þau hafa sýnt verk sín í almannarýmum í ólíkum borgum víða um Evrópu og haldið einkasýningar um heim allan.

Jonatan Habib Engqvist er alþjóðlegur sýningarstjóri og höfundur. Frá 2021 hefur hann starfað sem ritstjóri Ord&Bild.