sudurnes.net
Afbygging stóriðju í Helguvík - Opnunarhóf á laugardag - Local Sudurnes
Opnunarhóf fyrir sýninguna, Afbygging stóriðju í Helguvík með listamannateyminu Libiu Castro & Ólafi Ólafssyni, verður haldið laugardaginn 9. mars kl. 14:00. Listasafn Reykjanesbæjar býður öll velkomin á sýninguna, Afbygging stóriðju í Helguvík, sem er verk í vinnslu og unnið í samstarfi og samtali Libiu & Ólafs við Töfrateymið, Andstæðinga stóriðju í Helguvík, aðra umhverfisverndarsinna, hagfræðing, íbúa Reykjanesbæjar og nærsamfélaga og sýningarstjórann Jonatan Habib Engqvist. Við mælum með því að fólk komi oftar en einu sinni yfir sýningartímann og taki þátt í samtalinu, segir í auglýsingu fyrir viðburðinn. Sýningin er styrkt af Safnasjóði. Listamennirnir eru styrktir af Myndlistarsjóði og Myndstef. Afbygging stóriðjunnar í Helguvík stendur til sunnudagsins 28. apríl 2024. Libia Castro & Ólafur Ólafsson hófu samstarf sitt í Hollandi árið 1997. Þau vinna þverfagleg samvinnuverkefni; með vídeó, ljósmyndun, hljóðskúlptúr og margmiðlunar innsetningar. Libia & Ólafur fóru fyrir hönd Íslands á Feneyjartvíæringinn árið 2011. Þau hafa sýnt verk sín í almannarýmum í ólíkum borgum víða um Evrópu og haldið einkasýningar um heim allan. Jonatan Habib Engqvist er alþjóðlegur sýningarstjóri og höfundur. Frá 2021 hefur hann starfað sem ritstjóri Ord&Bild. Meira frá SuðurnesjumListahátíð barna í Reykjanesbæ í þrettánda sinnUngmenni í Reykjanesbæ ósátt við samgöngumál – Funduðu með bæjarstjórnAllir með! hefst í dagBarnakór [...]