Nýjast á Local Suðurnes

Lýsa yfir hættustigi á landamærum – Mögulegt að setja upp fjöldahjálparstöð

Ríkislögreglustjóri virkjað viðbragðsáætlun vegna yfirálags á landamærum frá óvissustigi yfir á hættustig. Þetta kemur fram í tilkynningu frá landamærasviði Ríkislögreglustjóra.

Fram kemur að lögreglan hafi fundið fyrir umtalsverðri aukningu á umsóknum um alþjóðlega vernd frá því að stríð braust út í Úkraínu.

Fram kemur í tilkynningunni að með virkjun viðbragðsáætlunar á hættustig séu virkjuð þau tæki, tól og aðstoð til þess að taka sem best á móti stærri hópum af fólki í neyð. Viðbragðsáætlunin gerir til dæmis ráð fyrir þeim möguleika að opna fjöldahjálparstöð.