Leikskóla lokað vegna myglu
Sólborg, leikskóla Hjallastefnunnar í Suðurnesjsbæ, verður lokað fram á mánudag vegna myglu. Þetta segir í pósti til foreldra leikskólabarna, en greint er frá á vef RÚV.
Verkfræðistofan Mannvit tók sýni úr húsakynnum skólans 30. ágúst og niðurstöðurnar sýna að mygla er á nokkrum stöðum í stærri byggingu leikskólans.
Á morgun verður þó neyðaropnun í því rými Sólborgar sem er myglufrítt, fyrir þá foreldra sem sjá sér ekki fært að vera heima með börnum sínum.