Nýjast á Local Suðurnes

Fimmtíu þúsund króna inneign í verðlaun í nafnasamkeppni

Ekki er enn búið að ákveða nafn á nýja verslun sem opnar í Vogum á næstu dögum, eins og greint var frá um miðjan síðasta mánuð þegar samningar tókust á milli sveitarfélagsins og rekstraraðila verslunarinnar um leigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins.

Rekstraraðilar verslunarinnar, Grocery Store ehf. hafa ákveðið að efna til nafnasamkeppni. Nafnasamkeppnin er öllum opin og íbúar eru hvattir til að taka þátt. Frestur til að skila inn tillögum að nafni er til og með 14. febrúar næstkomandi og skulu þær berast á netfangið mary.weryszko@gmail.com 

Í verðlaun fyrir bestu hugmyndina er 50 þúsund króna gjafabréf í nýju versluninni.