Nýjast á Local Suðurnes

Viltu rómantík á Reykjanesi í boði Visit Reykjanes? Skoðaðu þetta!

Tímaritið USA Today stóð fyrir kosningu meðal lesenda sinna á veraldarvefnum um besta “Under-the-radar destination” sem sennilega má þýða sem “lítt þekktur áfangastaður fyrir rómantíska ferð” í júlí. Úrslit kosninganna voru kunngerð svo í ágúst og endaði Reykjanesið í 5. sæti.

Visit Reykjanes stendur af þessu tilefni fyrir leik á Facebook-síðu sinni þar sem verðlaunin eru ekki af verri endanum, en heppinn vinur Visit Reykjanes getur boðið ástinni sinni uppá ýmisleg skemmtilegt, meðal annars í krabbaveislu hjá Vitanum í Sandgerði, í heimsókn til Þekkingarseturs Suðurnesja í Sandgerði og á Rokksafn Íslands í Hljómahöllinni ásamt gistingu á Hótel Bergi í Reykjanesbæ.

Dregið verður fimmtudaginn 24. september og eru um að gera fyrir alla sem eru þjakaðir af rómantík að taka þátt í leiknum en það má gera hér.