Nýjast á Local Suðurnes

Opna bókhald bæjarins

Grindavíkurbær hefur  opnað bókhald bæjarins til að auka aðgengi að fjárhagsupplýsingum og skýra ráðstöfun fjármuna sveitarfélagsins á einfaldan og myndrænan máta. 

Annars vegar er hægt að rýna í tekjur sveitarfélagsins og hins vegar í gjaldaliði. Hægt er að skoða kostnað bæjarfélagsins við hvern málaflokk fyrir sig, þjónustuþætti og gjaldaliði aftur til ársins 2018. 

Mæliborðið var unnið samstarfi við KPMG en hér fyrir neðan er hægt að nálgast opið bókhald Grindavíkurbæjar.

Opið bókhald