Nýjast á Local Suðurnes

Ók á 90 km hraða á Njarðarbraut – Réttindalaus og í vímu

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði nýverið afskipti af vegna glæfralegs aksturs reyndist vera réttindalaus. Hann ók á 91 km. hraða á Njarðarbraut þar sem hámarkshraði er 50 km. á klukkustund. Þegar lögreglumenn ræddu við hann vaknaði grunur um að hann væri undir áhrifum fíkniefna og var hann því handtekinn og færður á lögreglustöð.

Þá ók annar ökumaður sviptur ökuréttindum og hinn þriðji var grunaður um ölvunarakstur.