Nýjast á Local Suðurnes

Slysagildra við Greniteig – “Margir eru að keyra eins og fantar”

Leoncie er ósátt við bæjaryfirvöld, lögreglu og þá sem aka ítrekað á bifreið hennar

Töluvert er um að ökumenn gæti ekki að hraðanum við akstur bifreiða í íbúahverfum Reykjanesbæjar og eru dæmi um að lögregan á Suðurnesjum hafi svipt ökumenn ökuréttindum vegna hraðaksturs á götum þar sem hámarkshraði er 30 km. á klst. á undanförnum mánuðum.

Hraðakstur var nokkuð algengur í efri hverfum Reykjanesbæjar og við Greniteig og Birkiteig í Reykjanesbæ fyrir nokkrum misserum, en að sögn nokkurra íbúa við göturnar sem blaðamaður ræddi við, hefur töluvert dregið úr hraðakstri í efri hverfunum, eftir að lögregla gerði átak í þessum málum við Norðurvelli í samstarfi við Reykjanesbæ.

Þá hefur einnig dregið úr hraðakstri við Greniteig og Birkiteig, en þó er töluvert um að ökumenn aki gegn einstefnu í þeim götum og sögðu íbúar við báðar göturnar að oft lægi við slysum vegna þessa.

Söngkonan góðkunna Leoncie býr sem kunnugt er við Greniteig og hún segist ítrekað verða vitni, bæði að ógætilegum akstri og akstri gegn einstefnu, og hún vandar starfsmönnum Reyjanesbæjar ekki kveðjurnar vegna þessara mála.

“Það er EINSTEFNU skilti  sem reykjanesbærs óvitar settu upp í limgerði nágranna mins á horninu af greniteigi 2 við vesturgötu. Áður fyrr var skiltið á bílaplani Samkaup strax. Við skiljum ekki hvers vegna þetta áberandi skilti var fært yfir götuna.

Dags daglega  eru folk í óréttu ráði að koma fljugandi á móti umferðinni á móti okkur þegar við erum að keyra inn frá vesturgötu inn í Greniteigin.” Sagði söngkonan í tölvupósti.

Leoncie segist margoft hafa kvartað vegna þessa, bæði til lögreglu og til Reykjanesbæjar en þeir aðilar benda hvor á annan segir söngkonan.

Margir eru að keyra eins og FANTAR, og fluga yfir hraðahindranir. Lögreglan segir að tala við reykjanesbær, og reykjanesbær segir að tala við lögreglunna. The Evidence that we have is very outstanding. As usual the system is corrupt and Rotten to the core.

Blaðamaður fékk að skoða upptökur úr eftirlitsmyndavélum sem staðsettar eru við hús söngkonunnar við Greniteig, en á upptökunum má sjá fjölmörg dæmi um ógætilegan akstur og brot gegn einstefnuakstri. Þá fékk blaðamaður einnig að skoða fjölda tjónaskýrsla vegna tjóna á bifreið söngkonunnar, en oftsinnis hefur verið ekið utan í bifreiðina þar sem hún hefur staðið fyrir framan hús hennar.

Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Umhverfis- og skiplagssviðs Reyjanesbæjar sagði í spjalli við blaðamann að ekki stæði til að fara í aðgerðir við þessar götur, en Reykjanesbær sendi bréf til allra íbúa við Greniteig og mæltist til að fólk æki gætilega.

“Við sendum bréf á alla í götunni um að aka gætilega, þá stórlega dró úr hraðakstri. Þetta er einstefnugata með hraðahindrunum. Ekki miki meira sem við getum gert.” Sagði Guðlaugur. “Það væri þá helst að loka götunni í miðjunni og gera tvo botnlanga – Og það stendur ekki til.” Sagði Guðlaugur.