Nýjast á Local Suðurnes

Umfangsmikil hópslysaæfing á Keflavíkurflugvelli á laugardag

Isavia vill benda íbúum Suðurnesja á að haldin verður flugslysaæfing á Keflavíkurflugvelli á laugardaginn 21. maí á milli 11-14. Æfingin er mjög umfangsmikil og munu um 450 manns taka þátt í henni. Kveiktir verða eldar, sjúkrabílar aka í neyðarakstri, björgunarsveitarbílar verða áberanda og svo framvegis. Íbúar á Suðurnesjum munu eflaust verða varir við æfinguna og því vildum við hjá Isavia benda á að allt verður þetta sem betur fer sviðsett, segir í tilkynningu.

Æfingin verður sem fyrr segir mjög umfangsmikil og ein stærsta hópslysaæfing sem haldin hefur verið á Íslandi. Margar starfseiningar koma að henni svo sem starfsmenn flugvallarins, lögregla, slökkvilið, sjúkraflutningsaðilar, starfsmenn sjúkrahúsa, almannavarnir, björgunarsveitir, Rauði krossinn, prestar, rannsóknaraðilar auk fjölda annarra. Flugslysaæfingar sem þessar eru haldnar á um fjögurra ára fresti á hverjum flugvelli á Íslandi þar sem starfrækt er áætlunarflug.