Gera tæplega þriggja kílómetra göngu- og hjólastíg
Sveitarfélagið Vogar hefur óskað eftir tilboðum í gerð göngu- og hjólastígs meðfram Vatnsleysustrandarvegi.
Verkið felst í gerð malbikaðs göngu- og hjólastígs sem byrjar við gatnamót á Vogavegi í Vogum og liggur svo meðfram Vatnsleysustrandarvegi. Heildarlengd stígs er um tveir og hálfur kílómetri. Gert er ráð fyrir að stígurinn verði tilbúinn til notkunar fyrir næsta sumar.