Handtekinn vegna sprengjuhótunar
Einn aðili hefur verið handtekinn vegna sprengjuhótunar sem barst í ráðhús Reykjanesbæjar í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum var aðilinn handtekinn við komu til landsins. Hótunin barst í almennan póst sveitarfélagsins og var á ensku.
„Það tókst mjög fljótt að rekja sprengjuhótunina og grunaður aðili var handtekinn í gær við komu til landsins,“ segir Gunnar Schram yfirlögregluþjónn hjá Suðurnesjum í svari til Fréttablaðsins