Nýjast á Local Suðurnes

Reykjanes Geopark gerir samstarfssamning við Wapp

Reykjanes Geopark og Wapp undirrituðu samstarfssamning á föstudaginn. Samningurinn er í nokkrum liðum og felur það m.a. í sér að Reykjanes verður nefnt Reykjanes Geopark í Wappinu, í öðru lagi mun Reykjanes Geopark bjóða upp á þrjár leiðarlýsingar sem verða ókeypis fyrir notendur Wappsins og í þriðja lagi verða í sameiningu sett niður markmið um fjölda og staðsetningu leiðarlýsinga á Reykjanesi sem verða skráðar í Wappið og seldar til notenda á vægu verði.