Nýjast á Local Suðurnes

Fjórir vaskir drengir halda hjólabrettakeppni á Ljósanótt

Fjórir ungir og framtakssamir drengir hafa skipulagt Dekkjakeppnina, hjólabrettakeppni sem verður haldin í Ungmennagarðinum við 88 húsið fimmtudaginn 1. september kl. 15:00. Þetta eru þeir Gísli Róbert Hilmisson, Aron Örn Hákonarson, Tómas Ingi Magnússon og Valur Þór Hákonarson. Þeir hafa m.a. komið til fundar við bæjarstjóra vegna áhuga síns á hjólabrettum og uppsetningu innanhús aðstöðu fyrir íþróttina.

Í Dekkjakeppninni verður keppt í frjálsri aðferð og eru vegleg verðlaun í boði. Sjá nánar í meðfylgjandi auglýsingu sem drengirnir sömdu í samráði við starfsfólk á fræðslusviði.

dekkjakeppnin_augl