Nýjast á Local Suðurnes

Grímuskylda í FS

Grímuskylda hefur verið tekin upp í Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá og með deginum í dag, mánudeginum 21. september. Tilkynning þessa efnis var meðal annars birt á fésbókarsíðu skólans og eru nemendur beðnir um að fylgja reglum um grímuskyldu í skólabyggingunni.

Nemendur eru hvattir til að mæta með grímu en einnig verður hægt að fá grímur í skólanum, við innganga og/eða á skrifstofu, segir í tilkynningunni. Þá segir að mikilvægt sé að bera grímu allan tímann sem dvalið er í skólanum og passa jafnframt að halda eins metra fjarlægð milli manna. Því er upplagt að kynna sér rétta grímunotkun á covid.is. Einnig er mikilvægt að passa vel uppá handþvott og spritta hendur þegar komið er í skólann en spritt standar eru við alla innganga, segir í tilkynningunni.

Þá eru þeir nemendur sem sýna flensueinkenni hvattir til að halda sig heima og tilkynna veikindi. Þá segir að ef einhver þarf að fara í sóttkví er mikilvægt að skólinn fái þær upplýsingar ef grípa þarf til einhverra ráðstafana.