Viðvörun frá Veðurstofu: Mikill vindur og snjókoma á morgun
Veðurstofan hefur sent frá sér stormviðvörun fyrir morgundaginn, búist er við stormi á Suður- og Vesturlandi á morgun og talsverðri eða mikill i úrkomu suðaustanlands. Í dag er hinsvegar spáð fínu veðri Suðvestanlands en smá éljum austanlands en annars yfirleitt bjartviðri.
Á morgun má síðan búast við Suðaustan 10-18 m/s og snjókomu eða slyddu suðvestan- og vestanlands upp úr miðnætti en 15-23 m/s og rigning eða slydda seint í nótt. Lægir mikið vestantil á landinu undir kvöld á morgun og fer yfir í snjókomu.