Nýjast á Local Suðurnes

Fjölbreytt dagskrá lýðheilsu- og forvarnarviku

Vikuna 30. september til 6. október næstkomandi er árleg lýðheilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ. Fjöldi heilsutengdra viðburða verður í boði fyrir bæjarbúa á öllum aldri.

Markmiðið með lýðheilsu- og forvarnarvikunni er að efla vitund og ýta undir heilbrigða lífshætti sem stuðla að bættri líðan og öflugri lýðheilsu bæjarbúa.

Fjölbreytt dagskrá verður í gangi alla vikuna, og ýmis tilboð í boði hjá fyrirtækjum og stofnunum Reykjanesbæjar sem taka virkan þátt. Meðal þeirra viðburða eru núvitundarganga í Njarðvíkurskógum, heilsufarsskoðun á Bókasafni Reykjanesbæjar, ókeypis sund í Vatnaveröld 4. október og fríir jógatímar í OM setrinu. Íþróttafélögin munu einnig bjóða upp á ókeypis æfingar og vinaviku, og líkamsræktarstöðvar verða með ýmis tilboð í gangi. Þá munu Nesvellir standa fyrir viðburðum fyrir eldri borgara.

Hægt er að kynna sér dagskrána í heild sinni á VisitReykjanesbær