Nýjast á Local Suðurnes

Sviptir ökuleyfi eftir hraðakstur við skóla – Lögregla með átak við alla grunnskóla

Lögreglan á Suðurnesjum svipti í gær tvo ökumenn ökuleyfi til bráðabirgða eftir að þeir höfðu orðið uppvísir að því að aka alltof hratt við Holtaskóla á Skólavegi. Þeir mældust á 75 og 66 km hraða í nágrenni við skólann þar sem hámarkshraði er 30 km. á klukkustund. Hraðamælingarnar fóru fram um það leiti sem skóla var að ljúka.

Lögreglan á Suðurnesjum hefur nú sérstakt umferðareftirlit við alla grunnskóla í umdæminu en við nær alla þeirra er 30 kílómetra hámarkshraði.