Sextug hjón tekin með sautján pakkningar af kókaíni innvortis
![keflavíkurflugvöllur - flugst](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/06/keflavíkurflugvöllur.jpg?resize=620%2C264)
Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft til rannsóknar mál sem upp kom þegar eldri hjón komu til landsins með fíkniefni innvortis í síðustu viku. Reyndist karlmaðurinn, sem er um sextugt, vera með fimmtán pakkningar af kókaíni innvortis og konan, á sextugsaldri, með tvær pakkningar af sama efni í leggöngunum. Um var að ræða samtals um 300 grömm af fíkniefnum.
Tollverðir stöðvuðu hjónin, sem eru hollensk, við komuna til landsins og handtók lögregla þau.
Rannsókn málsins er á lokastigi.