Nýjast á Local Suðurnes

Sorphirða komin á áætlun

Innleiðing á nýju flokkunarkerfi úrgangs, þar sem flokkað er í fjóra flokka við húsvegg, hefur farið mjög vel af stað. Íbúar hafa tekið vel í aukna flokkun og sjáum við góðar heimtur bæði á endurvinnsluefnum og lífrænum eldhúsúrgangi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kölku, en þar segir einnig að hirðan á tunnum við heimili er nú komin á áætlun og er uppfært dagatal nú tilbúið fyrir íbúa, það má nálgast hér. Sorphirðudagatal

Við minnum á að tunnur við heimili eru tæmdar eins og hér segir:

  • Blandaður úrgangur á 14 daga fresti
  • Lífrænn eldhúsúrgangur á 14 daga fresti
  • Pappír / Pappi á 28 daga fresti
  • Plastumbúðir á 28 daga fresti

Ef íbúar eru að lenda í að tunnur við heimilin fyllist fyrr bendum við á að hægt er að notast við grenndarstöðvarnar fyrir þá flokka sem tekið er á móti þar sem og móttökuplön Kölku, sem taka á móti -öllum úrgangi, segir í tilkynningunni.