Nýjast á Local Suðurnes

Óskar eftir dómurum úr stúkunni

Launadeilur dómara í körfuknattleik við Körfuknattleikssamband Íslands verða þess valdandi að dómara vantar á lokaleiki Pétursmótsins, sem fram fara í kvöld, en körfuboltadómarar munu ekki dæma leiki í meistaraflokki fyrr en deilan leysist.

Ingvi Þór Hákonarson, varaformaður Kkd. Keflavíkur fer óvenjulega leið í að óska eftir dómurum á leiki kvöldsins, en hann óskar eftir fólki sem alla jafna er í stúkunni, en veit yfirleitt betur en lærðir dómar.

Facebookfærsla Ingva Þórs:

Alltaf þegar ég fer á körfuboltaleiki eru sérfræðingar í stúkunni sem vita allt betur en þeir sem eru að dæma. Ég er með svakalegt tilboð fyrir ykkur sem kemur ekki oft fyrir. Vantar dómara á pétursmótið í kvöld kl 18 og klukkan 20 nú er tækifærið fyrir ykkur. Koma svo.