Nýjast á Local Suðurnes

Líkfundur í berginu við smábátahöfnina

Lík fannst í berg­inu við smá­báta­höfn­ina í Gróf í Kefla­vík um miðjan dag í dag.

Lög­regl­an er með málið til rann­sókn­ar, en mikill viðbúnaður var á svæðinu um klukkan eitt, þar sem allt til­tækt slökkvilið var kallað út, ásamt sjúkra­bíl­um, lög­reglu og björg­un­ar­sveit­um.

Ólaf­ur Helgi Kjart­ans­son lög­reglu­stjóri á Suður­nesj­um staðfest­ir lík­fund­inn við mbl.is. Málið er rann­sakað sem mannslát en ekki fást frek­ari upp­lýs­ing­ar um rann­sókn­ina.