Nýjast á Local Suðurnes

Jón Jónsson heldur tónleika í Hljómahöll

Föstudaginn 17. febrúar mun Jón Jónsson stíga á svið í Hljómahöll ásamt hljómsveit sinni. Er þetta í annað sinn sem Jón Jónsson heldur tónleika í fullri lengd í Bítlabænum fagra en þá seldist hratt upp og því mikil tilhlökkun í hans herbúðum.

Jón Jónsson gaf út plötuna Heim fyrir jólin 2014 og hafa lög á borð við Gefðu allt sem þú átt, Endurgjaldslaust, Ykkar koma og Heltekur minn hug fengið að óma á útvarpsstöðum landsins auk þess sem lagið Your day var eitt vinsælasta lagið á útvarpsstöðvum árið 2016.

Platan Wait for Fate sló einnig rækilega í gegn þegar hún kom út árið 2011 og er aldrei að vita nema lög eins og Kiss in the Morning, Sooner or Later, Always Gonna Be There og When You’re Around fái að hljóma þann 17. febrúar.

Jón Jónsson er þekktur fyrir sína hlýlegu og einlægu sviðsframkomu og því ættu gestir að reikna með notalegri kvöldstund þar sem vel valdir tónar fá að hljóma í bland við ekki svo vel valda brandara.

Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og húsið opnar 19:00. Hægt er að nálgast miða á vef Hljómahallar.