Nýjast á Local Suðurnes

Enginn gripinn undir áhrifum við öflugt eftirlit

Lögreglan á Suðurnesjum heldur úti öflugu eftirliti með ölvunarakstri á aðventunni. Það er helst frá því að segja að ökumenn stóðu sig frábærlega vel um helgina og reyndist enginn ökumaður undir áhrifum áfengis. Munið að eftir einn ei aki neinn, segir í tilkynningu frá lögreglu.

Í dag er bjart og fallegt á Reykjanesinu og sólin lágt á lofti. Munum eftir hreinum framrúðum og sólgleraugum ásamt því að aka varlega við gangbrautir. Njótið dagsins. Segir einnig.