Röskun á höfuðborgarstrætó og tafir á millilandaflugi
![keflavíkurflugvöllur - flugst](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/06/keflavíkurflugvöllur.jpg?resize=620%2C264)
Mjög hvasst er á Reykjanesbraut um þessar mundir og liggja strætóferðir (leið 55) á milli Reykjaness og höfuðborgarsvæðisins niðri. Fólk er hvatt til að fylgjast með tilkynningum um ferðir á vef Strætó bs.
Þá hefur orðið töluverð seinkun verður á millilandaflugi til og frá Keflavíkurflugvelli vegna veðursins, en gert er ráð fyrir að fyrsta áætlunarvél Icelandair fari í loftið um klukkan 9:30. Fyrsta vél WOW air til Evrópu fer í loftið um klukkan 11:30. Nánari upplýsingar um flugtíma má finna á vef Keflavíkurflugvallar.