Nýjast á Local Suðurnes

Röskun á höfuðborgarstrætó og tafir á millilandaflugi

Mjög hvasst er á Reykjanesbraut um þessar mundir og liggja strætóferðir (leið 55) á milli Reykjaness og höfuðborgarsvæðisins niðri. Fólk er hvatt til að fylgjast með tilkynningum um ferðir á vef Strætó bs.

Þá hefur orðið töluverð seinkun verður á millilandaflugi til og frá Keflavíkurflugvelli vegna veðursins, en gert er ráð fyrir að fyrsta áætl­un­ar­vél Icelanda­ir fari í loftið um klukk­an 9:30. Fyrsta vél WOW air til Evr­ópu fer í loftið um klukk­an 11:30. Nánari upplýsingar um flugtíma má finna á vef Keflavíkurflugvallar.