Nýjast á Local Suðurnes

Bæjarstjóri biðst afsökunar á herbergisleigu

Róbert Ragnarsson bæjarstóri í Grindavík hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna útleigu á herbergi í íbúð í eigu Grindavíkurbæjar. Í yfirlýsingunni sem er að finna hér fyrir neðan segir Róbert meðal annars að hann hefði átt að leita heimildar eiganda hússins áður en hann skráði eignina á Airbnb.

Um miðjan ágúst síðastliðinn skráði ég eitt herbergi á heimili mínu til leigu fyrir ferðamenn á vefsíðunni Airbnb, eins og kom fram í fréttaflutningi Stundarinnar. Ég afskráði herbergið af síðunni 10. september síðastliðinn.

Þar sem ég hef afnot af húsi í eigu Grindavíkurbæjar, hefði ég átt að leita heimildar eigandans áður en ég skráði eignina á Airbnb. Það gerði ég ekki, sem voru mistök sem ég biðst innilega afsökunar á.
Virðingarfyllst
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri