Nýjast á Local Suðurnes

Opna hundagerði í ágúst

Á fundi umhverfis- og ferðamálanefndar Grindavíkurbæjar í gær var farið yfir stöðuna á væntanlegu hundagerði og hugmyndum að fýsilegum umsjónaraðilum með svæðinu. Nefndin lagði það til á fundi sínum að auglýst yrði eftir áhugasömum aðilum til að hafa umsjón með hundagerðinu.

Um er að ræða 900 fermetra svæði sem verður afgirt og staðsett við Nesveg (sjá mynd fyrir ofan.)

Þeir sem koma til með að fara með umsjón svæðisins sjá um að útbúa umgengnisreglur og vera tengiliður þeirra hundeigenda sem nota svæðið við Nesveg við Grindavíkurbæ. 

Áætlað er að hefja vinnu við uppsetningu gerðisins seinnipartinn í ágúst.