Torkennilegur hlutur reyndist vera flugskeytabúnaður

Lögreglunni á Suðurnesjum barst í gær tilkynning um torkennilegan innan girðingar á haftasvæði Keflavíkurflugvallar, eins og greint var frá á vef sudurned.net.
Um gamlan búnað er að ræða sem tengist flugskeytum, segir í tilkynningu lögreglu vegna málsins og hefur Landhelgisgæslan málið á sinni könnu. Engin hætta er á ferðum, segir jafnframt í tilkynningunni.
Yfirmaður sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar, staðfestir í samtali við fréttastofu RÚV, að um gamlan flugskeytabúnað hafi verið að ræða en svæðið sé gamall urðunarstaður fyrir flugvélar. Margtum fleiri flök af flugvélum séu á svæðinu.
Flakið reyndist vera af orrustuþotu af gerðinni F89 Scorpion. Á þeim eru eldflaugar á vængjarendum og því var farið í að kanna hvort vélin hefði farist á svæðinu en ekkert virðist benda til þess.