Nýjast á Local Suðurnes

Fjárhagur sveitarsjóðs telst vera „heilbrigður“ – Skuldaviðmið komið niður fyrir 60%

Á fundi bæjarráðs Voga í síðustu viku voru drög að ársreikningi bæjarsjóðs og stofnana hans fyrir árið 2018 lögð fram til kynningar, en vinna við gerð hans hefur staðið yfir undanfarnar vikur. Samkvæmt drögunum er rekstrarafkoma sveitarfélagsins umfram væntingar.

“Það er ánægjulegt að segja frá því að niðurstöður rekstrarreiknings ársins 2018 eru góðar, og resktrarafkoman umfram væntingar.” Segir í pistli bæjarstjórans Ásgeirs Eiríkssonar.

Heildarskatttekjur ársins voru liðlega 1,2 milljarður króna, en rekstrarafgangur tæpar 50 milljónir króna. Launakostnaður er sem fyrr stærsti eintaki kostnaðarliður í rekstri sveitarfélagsins, en laun og launatengd gjöld námu alls tæpum 690 m.kr. á árinu.

Efnahagsreikningurinn ber þess merki að fjárhagur sveitarsjóðs telst vera „heilbrigður“, samkvæmt pistli bæjarstjóra, en langtímaskuldir sveitarsjóðs hafa farið lækkandi undanfarin ár. Samkvæmt lykiltöluyfirliti ársreikningsins er skuldaviðmið skv. reglugerð nú komið niður fyrir 60%, sem telst vera mjög viðunandi. Leyfilegt hámark er 150% af reglubundnum tekjum sveitarsjóðs.

Í ársreikningnum má finna ýmsar áhugaverðar upplýsingar um eitt og annað er snýr að rekstri sveitarfélagsins. Ársreikningurinn verður tekinn til fyrri umræðu í bæjarstjórn á næsta bæjarstjórnarfundi, sem verður miðvikudaginn 27. mars n.k., og birtur á vef sveitarfélagsins í kjölfarið. Síðari umræða um reikninginn verður á aprílfundi bæjarstjórnar, sem er fyrirhugaður miðvikudaginn 24. apríl n.k.