Nýjast á Local Suðurnes

Banaslys á Reykjanesbraut

Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Reykjanesbraut, skammt austan við Fitjar í Reykjanesbæ í dag eftir að ökutæki sem hann ók valt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Þar segir að slysið hafi orðið á vegakaflanum í austurátt sem liggur austan Fitjar en vestan Grindavíkurvegar.

Lögreglan á Suðurnesjum og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Ökumaðurinn var einn í bílnum.