Nýjast á Local Suðurnes

Lentu á Keflavíkurflugvelli vegna veikinda ungabarns

Lenda þurfti flugvél á Keflavíkurflugvelli í vikunni vegna veikinda ungbarns sem var um borð í henni. Vélin var á leið frá Þýskalandi til Bandaríkjanna og voru læknar um borð.

Í öryggisskyni var ákveðið að lenda henni hér og var barnið flutt með sjúkrabifreið á vökudeild Barnaspítalans í Reykjavík.