sudurnes.net
Banaslys á Reykjanesbraut - Local Sudurnes
Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Reykjanesbraut, skammt austan við Fitjar í Reykjanesbæ í dag eftir að ökutæki sem hann ók valt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Þar segir að slysið hafi orðið á vegakaflanum í austurátt sem liggur austan Fitjar en vestan Grindavíkurvegar. Lögreglan á Suðurnesjum og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Ökumaðurinn var einn í bílnum. Meira frá SuðurnesjumNjarðvík fær nýjan þjálfaraSigmundur leikjahæsti dómari sögunnarBuster á göngu fann fíkniefniNjarðvík fær sex milljónir frá ReykjanesbæKynna Amerískan fótbolta í ReykjanesbæGönguleið að gosstöðvum orðin greiðfærFóru eftir Google maps og festu bílinnFrístundavefur Reykjanesbæjar kominn í loftiðBreytingar á HSS eftir að neyðarstig tók gildiEitt fyrirtæki fékk nær allar lóðir sem boðnar voru upp í Dalshverfi