sudurnes.net
Drónabann við Grindavík framlengt - Local Sudurnes
Áður útgefið flug- og drónabann yfir Grindavík hefur verið framlengt til 15. desember. Fjölmiðlum verða veittar undanþágur með skilyrðum, segir í tilkynningu. Að beiðni samhæfingarstöðvar Almannavarna, fyrir hönd Lögreglustjórans á Suðurnesjum, hefur áður auglýst flug- og drónabann verið framlengt til 15. desember nk. Lokunin nær til sama svæðis og verið hefur, sem markast af eftirfarandi hnitum: 635621N0222218W635440N0221323W634641N0222232W634902N0223533W Gegn skráningu og tilkynningaskyldu fá fjölmiðlar undanþágu til drónaflugs undir 60 m yfir sjávarmáli. Þó verður ekki heimilt að fljúga drónum á svæðinu milli kl. 18:00 og 07:00. Sótt er um undanþágu á netfangið info@sst.is eða í síma 831-1644 á dagvinnutíma, segir í tilkynningunni. Meira frá SuðurnesjumGera athugasemdir við slaka mætingu nefndarmanna í Umhverfis- og skipulagsnefndKynna Amerískan fótbolta í ReykjanesbæKeppa í Backhold á LjósanóttBjóða út byggingu fjögurra kílómetra göngustígsMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkHugur í Njarðvíkingum fyrir 17. bikarúrslitaleikinnMest mun mæða á Reykjanesbraut – Gagnvirkt kort sýnir lokanirVara við hálku og slæmu skyggni á ReykjanesbrautMatareitunarmáli sem upp kom í Sandgerði lokið með sáttFundu brak sem talið er vera úr seglskútu sem saknað hefur verið frá því í sumar