Nýjast á Local Suðurnes

Umboðsmaður Alþingis mælir með endurupptöku máls vegna byggingar við Selás

Umboðsmaður Alþingis beinir þeim tilmælum til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála að nefndin taki mál vegna byggingar við Selás í Ásahverfi í Reykjanesbæ aftur til meðferðar, en framkvæmdir við byggingu hússins hafa verið stopp í um tvö ár eftir að í ljós kom að byggingin stendur tæpum meter of hátt miðað við skipulag hverfisins.

Málið hefur verið í gangi í kerfinu í langan tíma og voru framkvæmdir við byggingu hússins stöðvaðar með ákvörðun byggingafulltrúa í desember árið 2019, en ekkert hefur verið unnið við bygginguna síðan þá. Sú ákvörðun var kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindarmála sem staðfesti ákvörðun byggingarfulltrúa með úrskurði í júní á síðasta ári. Í úrskurði nefndarinnar, sem skoða má í heild hér, kemur meðal annars fram að svo virðist sem mistök af hálfu beggja aðila virðast hafa valdið því að málið sé komið í þennan farveg, þannig hafi byggingarfulltrúi samþykkt uppdrætti sem gerðu ráð fyrir að húsið væri rúmum meter hærra en deiliskipulag gerir ráð fyrir, eða 7,62 m á hæð í stað 6,3 metrar frá gólfplötu, þ.e. að gólfkótinn væri 13,20 og hæsti kóti 20,82. Þeir uppdrættir voru hins vegar ekki áritaðir af löggiltum hönnuði og því ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag og áritun þeirra ekki lögum samkvæmt, segir meðal annars í úrskurðinum.

Sem fyrr segir var erindi eiganda hússins um hækkun hafnað í kjölfar grenndarkynningar, þar sem athugasemdir bárust frá íbúum við sömu götu. Í fylgigögnum með grenndarkynningunni má þó sjá að í nokkrum tilvikum virðist sem farið hafi verið á svig við gildandi deiliskipulag í hverfinu, en bent er á nokkrar byggingar hvar hæð húsa og þakgerð er ekki í samræmi við skipulagið auk þess sem húsagerðum hafi verið breytt, úr tveggja hæða í einnar hæðar, þannig að lóðir hafi verið hækkaðar um allt að þrjá metra. Þá kemur fram í umsögn íbúa við götuna að ítrekað hafi verið bent á misræmi í hæðum og að leysa hefði mátt úr málinu með auðveldum hætti á fyrri stigum.

Í úrskurði  Umboðsmanns Alþingis segir meðal annars:

„Í málinu lá fyrir að hæð hússins var í samræmi við byggingarleyfi sem A hafði fengið útgefið og þá uppdrætti sem byggingarfulltrúinn hafði upphaflega samþykkt. Umboðsmaður benti á að byggingarfulltrúa væri við ákveðnar aðstæður rétt að stöðva framkvæmdir tímabundið á meðan rannsakað væri hvort byggingarleyfi yrði fellt niður eða afturkallað. Þrátt fyrir það yrði ekki annað ráðið af rökstuðningi ákvörðunar hans um stöðvun framkvæmda en að hún hefði byggst á því að hæð hússins væri ekki í samræmi við skipulagsskilmála og uppfærða uppdrætti hússins. Að þessu leyti hefði aftur á móti ekkert komið fram um að byggingarfulltrúi hefði eftir stöðvun framkvæmdanna hafið undirbúning að ákvörðun um niðurfellingu eða afturköllun byggingarleyfisins.“

Eins og áður segir hefur Umboðsmaður Alþingis nú beint þeim tilmælum til úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál að nefndin taki erindið fyrir að nýju.

Úrskurðinn má lesa hér