sudurnes.net
Umboðsmaður Alþingis mælir með endurupptöku máls vegna byggingar við Selás - Local Sudurnes
Umboðsmaður Alþingis beinir þeim tilmælum til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála að nefndin taki mál vegna byggingar við Selás í Ásahverfi í Reykjanesbæ aftur til meðferðar, en framkvæmdir við byggingu hússins hafa verið stopp í um tvö ár eftir að í ljós kom að byggingin stendur tæpum meter of hátt miðað við skipulag hverfisins. Málið hefur verið í gangi í kerfinu í langan tíma og voru framkvæmdir við byggingu hússins stöðvaðar með ákvörðun byggingafulltrúa í desember árið 2019, en ekkert hefur verið unnið við bygginguna síðan þá. Sú ákvörðun var kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindarmála sem staðfesti ákvörðun byggingarfulltrúa með úrskurði í júní á síðasta ári. Í úrskurði nefndarinnar, sem skoða má í heild hér, kemur meðal annars fram að svo virðist sem mistök af hálfu beggja aðila virðast hafa valdið því að málið sé komið í þennan farveg, þannig hafi byggingarfulltrúi samþykkt uppdrætti sem gerðu ráð fyrir að húsið væri rúmum meter hærra en deiliskipulag gerir ráð fyrir, eða 7,62 m á hæð í stað 6,3 metrar frá gólfplötu, þ.e. að gólfkótinn væri 13,20 og hæsti kóti 20,82. Þeir uppdrættir voru hins vegar ekki áritaðir af löggiltum hönnuði og því ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag og áritun þeirra ekki [...]