Nýjast á Local Suðurnes

Sjálfsafgreiðsluskjár tekinn í notkun á HSS

Nýlega var tekinn í gagnið sjálfsafgreiðsluskjár í móttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í Reykjanesbæ, en gert er ráð fyrir að skjárinn einfaldi skráningu þeirra sem eiga bókaða tíma á stofnuninni.

Með því að nota skjáinn geta skjólstæðingar sem eiga bókaðan tíma slegið inn kennitölu sína og tilkynnt sig inn ásamt því að greiða komugjald í posa. Við afgreiðslustandinn má finna andlitsgrímur sem þarf að hafa í biðsalnum. Um er að ræða talsverða þjónustubót, enda flýtir þetta nýja fyrirkomulag mjög fyrir afgreiðslu.

Enn þarf þó að fara til ritara varðandi einhverja þjónustuþætti, en þá fá skjólstæðingar tilkynningu þess efnis á skjánum.