Nýjast á Local Suðurnes

Njarðvík með öruggan sigur á Stjörnunni

Njarðvíkingar höfðu undirtökin nán­ast all­an leik­inn þegar liðið lagði Stjörnuna að velli í Dominos-deildinni í körfuknattleik í gær og var tíu stiga sigur liðsins 91-81 afar sannfærandi.

Ter­rel Vin­son átti stórleik fyrir Njarðvíkinga og skoraði 38 stig, Logi Gunnarsson skoraði 18 stig og átti 8 stoðsendingar að auki, Vil­hjálm­ur Theo­dór Jóns­son og Odd­ur Rún­ar Kristjáns­son skoruðu 9 stig hvor.