Nýjast á Local Suðurnes

Skógarás með besta eTwinning verkefnið

Heilsuleikskólinn Skógarás á Ásbrú fékk nýverið verðlaun fyrir besta eTwinning verkefni síðasta skólaárs. Það er Rannsóknarmiðstöð Íslands, Rannís, sem hefur umsjón með styrkveitingum til eTwinning verkefna og veitti starfsfólki leikskólans verðlaunin. Að auki gerði Rannís stutt myndband um verkefnið sem aðgengi er að í þessari frétt.

Verkefnið „The Little Ecologist” er hluti af Erasmus+ verkefni Skógaráss sem ber heitið „Eco Tweet“. Um er að ræða umhverfisverndarverkefni þar sem nemendur skólans læra um leiðir til þess að gæta að umhverfinu og taka ákvarðanir þar af lútandi. Í verkefninu læra börnin meðal annars um vistfræði, verndun dýra, gróðursetningu, tré, kryddplöntur, vatn og endurvinnslu svo eitthvað sé nefnt.