Nýjast á Local Suðurnes

Gripinn dansandi undir stýri og rásandi út um allan veg

Stórundanlegt aksturslag bifreiðar vakti athygli lögreglumanna á Suðurnesjum þegar þeir voru við hefðbundið eftirlit í fyrrakvöld. Bifreiðinni var ekið kantanna á milli, rásandi út um allan veg, í átt að flugstöðinni. Ökumaðurinn sveiflaði höndunum ákaft og var með aðra út um gluggann bílstjóramegin.

Þegar lögregla ræddi við hann um ógætilegan akstur kvaðst hann hafa verið að dansa við tónlist sem hann var að hlusta á meðan á akstri stóð. Hann brást afar illa við athugasemdum lögreglu og reyndist erfitt að ræða við hann. Hann róaðist þó þegar honum var komið í skilning um að hann ætti að hafa hendur á stýri í akstri því annað gæti skapað mikla hættu í umferðinni. Ók hann svo prúður á brott með báðar hendur á stýri.