Nýjast á Local Suðurnes

Sat fastur í bíl eftir veltu á Suðurstrandarvegi

Bifreið valt á Suðurstrandarvegi í vikunni þegar ökumaðurr missti stjórn á henni í hálku. Bifreiðin endaði á hvolfi og sat ökumaðurinn fastur í henni þar til að sjúkraflutningamenn aðstoðuðu hann við að komast út úr henni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu en þar segir jafnframt að árekstrar hafi orðið á Grindavíkurvegi og Njarðarbraut auk þess sem nokkur umferðaróhöpp hafi átt sér stað á Reykjanesbraut.

Ekki urðu alvarleg slys á fólki í þessum tilvikum en flytja þurfti tvo á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja vegna eymsla sem þeir fundu fyrir eftir óhöppin.