Persónuvernd gerði athugasemdir við Facebook-færslu lögreglu
![logr faceb twitt](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/11/Untitled-design-5.png?resize=620%2C264)
Persónuvernd gerði athugasemdir við Facebook-færslu lögreglustjórans á Suðurnesjum eftir að lögreglan hvatti foreldra til að kaupa GPS-úr fyrir yngstu börnin, en úrin eru nettengd tæki með staðsetningarbúnaði og gera foreldrum kleift að fylgjast með ferðum barna sinna.
Lögreglan hvatt foreldra til þess að fjárfesta í slíkum búnaði í kjölfar þess að átta ára drengur skilaði sér ekki heim á tilsettum tíma á dögunum.
Lögregla greinir frá því á Facebook að Persónuvernd hafi komið því á framfæri að töluverð hætta væri á því að hakkarar gætu brotist inn í snjallúr sem þessi.