Nýjast á Local Suðurnes

Koma upp vara vatnsbóli

Reykjanesbær og Suðurnesjabær hafa undanfarið unnið að því með stjórnvöldum að koma upp nýju vara vatnsbóli við Árnarétt í Garði.

Nýtt vatnsból mun nýtast þeim 25 þúsund íbúum og fyrirtækjum sem eru í Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ. Boranir hófust mánudaginn 20. nóvember síðastliðinn og er gert ráð fyrir að nauðsynlegur dælubúnaður sem getur skilað neysluvatni inn á dreifikerfi vatnsveitunnar verði kominn upp eftir um þrjár vikur.

Ljóst er að verði neysluvatnslaust á svæðinu myndi skapa neyðarástand þar sem neysluvatn er grunn forsenda þess að hægt sé að halda uppi búsetu og atvinnustarfsemi á svæðinu, segir í tilkynningu. Mikill skilningur hefur verið á þessu og tilskilin leyfi til borunar fengið flýtimeðferð í stjórnsýslunni, segir jafnframt.