Nýjast á Local Suðurnes

Í vímuakstri með tvo unga syni sína í bílnum

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum tók úr umferð í gær vegna gruns um fíkniefnaakstur var með tvo unga syni sína í bifreiðinni og var annar þeirra án öryggis- og verndarbúnaðar. Sýnatökur á lögreglustöð sýndu jákvæðar niðurstöður á neyslu ökumannsins á fíkniefnum og var viðkomandi því handtekinn. Aðstandendum barnanna svo og barnavernd Reykjavíkur var gert viðvart um málið.

Auk þessa hefur lögregla tekið fáeina ökumenn úr umferð vegna gruns um fíkniefnaneyslu á undanförnum dögum.  Þá hafa nær tuttugu ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur.  Skráningarnúmer voru fjarlægð af sex bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar.