sudurnes.net
Í vímuakstri með tvo unga syni sína í bílnum - Local Sudurnes
Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum tók úr umferð í gær vegna gruns um fíkniefnaakstur var með tvo unga syni sína í bifreiðinni og var annar þeirra án öryggis- og verndarbúnaðar. Sýnatökur á lögreglustöð sýndu jákvæðar niðurstöður á neyslu ökumannsins á fíkniefnum og var viðkomandi því handtekinn. Aðstandendum barnanna svo og barnavernd Reykjavíkur var gert viðvart um málið. Auk þessa hefur lögregla tekið fáeina ökumenn úr umferð vegna gruns um fíkniefnaneyslu á undanförnum dögum. Þá hafa nær tuttugu ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur. Skráningarnúmer voru fjarlægð af sex bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar. Meira frá SuðurnesjumTekinn á fleygiferð með lyfjakokteil í blóðinuÖkumenn í vikunni: Fullir á alltof miklum hraða og á óskoðuðum eða ótryggðum bílumKeflvíkingar bikarmeistarar í körfuknattleikClinch Jr. með stórleik fyrir Grindavík sem kom á óvart í fyrsta leik Dominos-deildarinnarÞrír handteknir vegna gruns um fíkniefnasöluDominos-deildin: Sigur hjá Keflvíkingum – Tap hjá NjarðvíkingumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnFjörheimar rafrænir vegna Covid-19Míluhraðamælir ruglaði ökumannÖlvaður á Þjóðbraut með barnunga dóttur á ferðinni