Nýjast á Local Suðurnes

Fá tvo starfsmenn og bíl

Ljósmynd: Reykjanesbær.is / OZZO

Á dögunum var lögð fram tillaga að fjölgun stöðugilda um tvö innan eignaumsýslu Reykjanesbæjar, umhverfissviðs auk kaupa á bifreið.

Bæjarráð tók málið fyrir á fundi sínum í gær og samþykkti umbeðna fölgun stöðugilda. Þá var ákveðið að samhliða fari fram úttekt á starfsemi og verkefnastöðu á umhverfissviði.

Bæjarráð samþykkti einnig bílakaup og lagði til viðauka við fjárhagsáætlun upp á fimm milljónir króna til þess.

Sviðsstjóra umhverfissviðs var veitt heimild til að auglýsa tvö störf á umhverfissviði.