Nýjast á Local Suðurnes

Yfir 1300 léku listir sínar á skautum

Aðventusvellið var formlega opnað í skrúðgarðinum þann 18. desember síðadtliðinn og óhætt er að segja að það hafi slegið í gegn.

Yfir 1300 manns skautuðu á svellinu yfir hátíðarnar og hefur verið ákveðið að svellið verði áfram opið að minnsta kosti út febrúar.

Gert er ráð fyrir að opið verði fimmtudaga til sunnudaga en jafnframt verði tekið mið af veðri. Allar upplýsingar um svellið má nálgast á vefsíðunni adventusvellid.is og þá má fylgjast með tilkynningum og öðrum upplýsingum á facebooksíðunni Aðventusvellið.